María Edwardsdó...'s profileMariasoft ®PhotosBlogLists Tools Help

Blog


    May 25

    Flutningur-> http://maria.blog.is

    Síðasta færsla fór eitthvað fyrir brjóstið á fólki eða vakti a.m.k. spurningar. Það var engin djúpstæð merking þarna að baki eða falin skilaboð til geimvera. Skýringin er afskaplega einföld. Til þess að fá að lesa inn færslur héðan og inná blog.is þarf ég að sýna fram á "eignarrétt" minn á þessu svæði. Við upphaf innlesturs fær maður svona runu af tölum og bókstöfum úthlutað. Þetta þarf maður svo að setja inná síðuna sem á að lesa inn og þá getur innlesturinn hafist. Mjög einfalt og sniðugt. En afhverju allt þetta vesen? Engum hefur leynst það sem vanið hefur komur sínar hingað að samskipti mín við tæknimenn Microsoft og MSN Space-fólkið hafa verið árangurslaus og pirrandi. Til samanburðar þá lenti ég í vandræðum með innlesturinn á blog.is, sendi þeim tölvupóst kl 21:07 á sunnudagskvöldið og var búin að fá svar kl 8:50 morguninn eftir. Í þeim tölvupósti var ég bara krafin um svar við einni laufléttri spurningu sem ég svaraði um hæl.. Kl. 10:23 þennan sama dag fékk ég aftur póst þar sem útskýrt var að Microsoft fari ekki að stöðlum (kemur ekki á óvart) en að búið sé að breyta innlestrinum á blog.is svo að nú sé gert ráð fyrir þessu afbrigði hjá Microsoft og þar að auki voru þeir búnir að lesa þetta inn fyrir mig. Þetta kalla ég góða og fljóta þjónustu. Svo á maður líka að velja íslenskt :)
     
    Er það ekki samt alveg dæmigert að dagana á eftir þá birtast stjörnurnar í contact listanum og svo í gær er hægt að komast inná svæðin hjá viðkomandi með því að smella á hlekkinn í contact spjaldinu. Akkúrat það sem ég var að kvarta undan að virkaðii ekki :)
     
    Þetta kemur ekki í veg fyrir flutninginn þó. Ég er ákveðin að færa mig yfir á http://maria.blog.is, uppfærið slóðirnar og ég hlakka til að sjá ykkur þar.
     
    Thanks for all the fish!
    May 22

    15B43C488BB5144E013398BC7661FB3F

    15B43C488BB5144E013398BC7661FB3F
    May 20

    Eurovision 2006

    Að horfa á Eurovision án þátttöku Íslands er óáhugavert en Eurovision án Gísla Marteins er óhugsandi. Ég hafði því ákveðið að sleppa að fylgjast með keppninni í ár. Við Elín sátum þó yfir sjónvarpinu þetta kvöld og vorum á rásarrápi. Við duttum inná BBC Prime sem var auðvitað með keppnina á dagskrá og þar fundum við okkar nýja Gísla Martein. Kostur Gísla undanfarin ár hefur einna helst verið sá að að pólítísk rétthugsun fékk ekki að koma nærri meðan á lýsingunni stóð. Þessi breski var aftur á móti með dásamlega gagnslausar og skemmtilegar ábendingar um það sem fram fór á skjánum. Svo var kaldhæðnin aldrei langt undan.
    Hér eru nokkur sýnishorn af gullmolum þess breska:

    Lettland: "Ljómandi fínt, þeir verða örugglega síðastir"
     
    "Ég vona að þetta sé ekki of spennandi fyrir ykkur."
     
    Malta: "maður með alvarlegar augabrúnir"
     
    "Hvítur er nýji svarti liturinn í ár."
     
    "Grikkland elskar ávexti og grænmeti"
     
    "Ekki útlit fyrir að hægt sé að fá drykk hérna, langt kvöld framundan"
     
    Bosnía-Herzegóvenía: "það tekur tíma fyrir lagið að fara af stað en svo fer það ekkert mjög langt"
     
    "Í fyrra var naflaár en í ár eru það fótleggir."
     
    "Hvað veit ég - ég hef ekki veðjað á vinningslagið síðustu 35 árin."
     
    Armenía: "Þetta lag færir axlabönd á hærra plan."
     
    Hann fór líka alveg á kostum þegar hann var að lýsa litlu myndbandsbrotunum á milli laganna sem sýndu Grikkland í allri sinni dýrð.
    "Hey þarna er ströndin aftur og þarna er grískt kaffi ... þarna sjáum við lest, strönd og hafið ... þarna er grískt brúðkaup ... hey, sjórinn aftur ... enn ein sjoppan, Grikkir virðast afskaplega stoltir af þeim ... drykkir, matur, sundföt en ekki neinn að kyssast ... meiri sjór ..."

    Ég legg til í að við höldum keppni fyrir bestu lýsingarnar á Eurovision. Þessi fær mitt atkvæði ... öll 12 stigin!
     
     
    Terry Wogan - nýja hetjan okkar Elínar í Eurovision
     
    Annars óska ég Finnum til hamingju með sigurinn þótt sjálf hefði ég viljað sjá Litháen taka þetta :-)
     
     
    May 14

    Fall er fararheill

    Bræður mínir ásamt félögum þeirra spila stundum fótbolta á sparkvellinum við Austurbæjarskóla. Síðasta fimmtudag hringdi Tommi í mig og spurði hvort ég vildi vera með. Við vorum búin að spila í ca 20 mín þegar hár bolti kemur í áttina til mín. Ég ætlaði að hlaupa á móti honum en heyrði þá háan smell og lá í jörðinni örskömmu síðar. Ég hélt að einhver hefði sparkað aftan í mig en það var þó enginn nærri. Ég þreifaði á fætinum og vissi strax hvað hafði gerst. Næsta stopp var slysó og eftir að hafa grenjað úr sjokki við þær fréttir að ég þurfi að eyða næstu 2 mánuðum í gipsi ákvað ég að taka Pollyönnu á þetta. Þetta gæti hafa verið svo miklu verra. T.d. er örugglega verra að fá loftstein í hausinn, tja eða fótbrjóta sig. Svo er líka jákvætt að þetta hafi verið vinstri fóturinn en ekki sá hægri því það þýðir að ég get a.m.k. komist um á bílnum mínum sem er auðvitað sjálfsskiptur. Fótbolti er í það minnsta stórhættulegur og ólíklegt að ég taki þátt í þessari íþrótt nema bara sem áhorfandi.
     
    Það má segja ýmislegt um hversu samrýmdar við Elín vinkona erum. Flestum þykir þó fulllangt gengið af mér að vera líka komin á hækjur. Síðastliðinn föstudag mættum við þannig á okkur komnar í kokkteil hjá SJÁ. Fólk benti, fólk hló og fólk kom og spurði hvað í ósköpunum hefði komið fyrir enda frekar fáránlegt að sjá tvær saman í þessum ástandi. Við erum samt ekki alveg eins, jú gott og vel við erum báðar á hækjum og jú báðar í gipsi. Já við erum líka báðar með laskaðan vinstri fót og höfðum báðar skreytt hækjurnar með glimmerslaufum. Munurinn er þó sá að hún er fótbrotin en ég er með slitna hásin.
     
    Á morgun byrjar svo fótboltavertíðin hjá mínum mönnum. Haukar-Þróttur á Ásvöllum kl. 20:00. Ég er búin að færa alla leikina inn í calender hjá mér og komst að því að einungis 2 af heimaleikjunum eru föstudagsleikir! *grmbl*
     
    Lifi Þróttur!
     
    May 09

    Á ferð og flugi

    Þá er það ákveðið ... nú á að skella sér til Danmerkur um Hvítasunnuhelgina. Það bætist ekki við listann af löndum sem maður heimsækir þó. Samkvæmt þessari síðu hef ég aðeins heimsótt 6% af löndum heimsins! Mamma er hugsanlega að fara til Finnlands í nokkra mánuði og þá bætist vonandi í safnið :-)
     


    Smelltu hér til að búa til þitt eigið kort

     

    Svo er nú aldeilis gleði þar sem ég er aftur farin að sjá stjörnur í blessaða MSN'inu mínu. Ég er alveg viss um að support'inu hjá Microsoft hefur verið úthýst til Indlands.  Það er ástæða fyrir því að það er ódýrara - léleg þjónusta á eðlilega að kosta minna! *grmbl*

     

    Ella gella liggur núna heima með fætur uppí loft. Hljómar betur en það er í raun og veru. Hún er allavega með annan fótinn upp í loft þar sem þessari elsku tókst á sinn einstaka hátt að fótbrjóta sig í óvissuferð með mbl. Ég var með henni síðast þegar þetta gerðist en það var fyrir mörgum árum á Þjóðhátíð í Eyjum. Stuttu fyrir það brot náðist þessi einstaklega skemmtilega mynd af henni.

     

     

     BATNIKVEÐJA til Elínar

     

    May 03

    Gleðilegt sumar

    Engar fréttir eru góðar fréttir ... þannig kýs ég allavega að skýra uppfærsluskortinn hér. Það hefur heilmikið verið í gangi og enn meiri breytingar væntanlegar.
     
     
    Helst í fréttum er það að ég  hef sagt upp hjá Opnum kerfum og ælta að takast á við ný og spennandi verkefni hjá Apple. Það er ekki alveg komið á hreint hvenær ég fæ mig lausa en það verður vonandi sem fyrst og eigi síðar en í ágústbyrjun. Það er hálfskrýtið að hugsa til þess að yfirgefa vinnustaðinn sem ég hef verið á í meira en 7 ár. Sætum skeytum og kveðjum rigndi yfir mig frá vinnufélögunum þegar þetta var tilkynnt og ég var meira og minna tárvot þann daginn. Auðvitað fylgdu verðskuldaðar Júdasarglósur með en það var svo sem ekki við öðru að búast frá þessum léttgeggjuðu tilvonandi fyrrverandi vinnufélögum mínum.
    Það eru nokkrir dagar liðnir síðan ég tók þessa ákvörðun og mér lýst alltaf betur og betur á þetta. Bjart framundan
     
     
    Árshátíð Klúbbsins var svo haldin núna um nýliðna helgi. Helga, Elín og ég borðuðum 5-réttað á La Primavera og það er óhætt að gefa bestu einkunn fyrir mat, vín og ekki síst þjónustuna. Silla kona Baldurs frænda var á vakt en hún er yfirþjónn þarna. Við fengum dekurmeðferð og áttum frábært kvöld saman.
     
    Annars má skrifa fréttaleysið hér mest á þá staðreynd að ég kyssti frosk fyrir nokkrum vikum og hef verið ansi upptekið við að kyssa hann síðan ... nóg um það í bili
     
    Sól, sumar og eintóm gleði :)
     
    March 27

    Blog í mýflugumynd

    Það er heilmargt búið að vera í gangi undanfarið  og mun ég vonandi gera því betri skil innan tíðar. Vegna fjölda áskoranna (og hótanna) neyðist ég til að henda inn myndum frá USA þótt lítill texti fái að fylgja.
     
    PS. Kolbrún er að ná sér ljómandi vel af brunasárinu - takk fyrir að hugsa svona fallega til hennar
    February 25

    Afurð úrkynjunnar úthverfa BNA

    Ég er að spá í að fá umboðið fyrir þessum peysum. Dásamleg dægrastytting að skoða hvað þessi Leslie hefur verið að dunda við.
     
     
     

     

    Annars er upphitun fyrir Öskudaginn í fullum gangi. Ég mætti með vængi í vinnuna á föstudaginn sem vakti óneitanlega mikla athygli. Það er reyndar hætt við að ég fari að gera þetta að staðaldri. Það er ekki amalegt að vera kallaður "engilinn minn" allan daginn

     

     

     

    February 19

    Hlátur og grátur

    Það hefur heilmargt gerst síðan síðasta færsla fór hér inn. Ég var reyndar búin að setja inn myndir frá síðustu helgi en þá fór fríður kvennahópur í húsmæðraorlof austur fyrir fjall. Reyndar þverneitaði ein úr hópnum að kalla þetta "húsmæðraorlof". Olga frænka vildi að við kölluðum þetta "dömufrí". Mér er nokk sama hvað hver vill kalla svona samkomu. 6 konur samankomnar þar sem öllu sem telst dömulegt var gefið frí á kannski réttilega að heita "dömufrí".

    Þessar ferðir hafa verið farnar nokkrum sinnum en þetta var í fyrsta skiptið sem við Helga systir komumst með. Í þessari ferð voru ásamt okkur systrum frænkur okkar þær Eva, Anna María og Olga. Svo var ein vinkona þeirra með í för sem heitir Linda. Helmingurinn hafði farið austur á föstudagskvöldinu og við Helga ásamt Lindu rúlluðum þangað snemma á laugardeginum. Við komum fyrst við í bústaðnum þar sem við höfðumst við og fórum svo allar samferða á Hótel Geysi þar sem snæddur var dýrindis brunch. Það er fátt frá helginni sem á erindi hér á þessa síðu, við sættumst á að  "what happens in [xxx] stays in [xxx]"! Niðurstaðan var allavega frábær helgi í góðum félagsskap og massa harðsperrur í magavöðvum vegna hláturs.

    Ég tel það algjör lykilatriðið í þessu lífi að haga sér reglulega eins og fífl. Tækifærið til að gera það enn eina ferðina kom einmitt á miðvikudaginn s.l. Grímubúningarnir sem voru pantaðir fyrr í mánuðinum komu nefnilega í hús. Mikil leynd hefur hvílt yfir þessu máli því vinnufélagar mínir í Opnum kerfum sem og vinnufélagar Elínar og Helgu á Mogganum mega ekki komast að í hvaða búningum við munum mæta í á öskudaginn. Við gátum auðvitað ekki setið á okkur að máta ... svo að fara út í þeim ... í bíltúr ... niður í bæ ... inná Grandrokk ... og auðvitað að lokum niður á Ölver! Það er til mynd af okkur 3 (Elín, Helga og ég) í búningnum og það er möguleiki að kaupa eintak fyrir grilljón milljónir! Vá hvað það er alltaf gaman þegar við gerum eitthvað saman!

      

    Einn vinur minn orðaði eitt sinn svo skemmtilega að hann hefði "aldrei verið eldri en nákvæmlega núna". Það á alltaf vel við en sérstaklega núna enda átti ég afmæli í vikunni sem leið og er orðin 32 ára - jibbí! Auðvitað hélt ég upp á það og bauð gestum að samfagna mér og þiggja veitingar. Er ástæða til að gera eitthvað annað en fagna? Það ágerist með hverjum afmælisdeginum að mér eru færðar samúðarkveðjur og þá aðallega frá kvenfólki. Í þetta sinn spurði meira að segja ein hvort mér finndist ekki hræðilegt "að eldast svona"?!?! Ég skil hreint ekkert í aldurstengdum kvíðaköstum kynsystra minna og heldur ekki afhverju aldur er feimnismál hjá kvenþjóðinni. Ég hlakka bara til að verða enn eldri - hef t.d. alltaf séð 40 ára afmælið í hyllingum! Það tengist því sennilega að ég er haldin þeirri skynvillu að þá verði ég búin að borga niður megnið af skuldunum mínum og geti farið að slaka meira á og leika mér. Mig minnir að ég hafi byrjað að spá í þetta þegar ég keypti fyrstu íbúðina mína. Núna þegar ekki er lengur svo óralangt í 40 ára afmælið og ég komin í þriðju íbúðina þyrfti kannski að endurskoða þetta mál ... hmmm best að fara að hlakka líka til þess að verða fimmtug! :)

    Það voru líka miður skemmtilegir hlutir sem gerðust í vikunni. Litla krúttið mitt hún Kolbrún brenndi sig frekar illa. Sjálfbjarga og duglega stelpan mín var að hita sér núðlusúpa á meðan ég var í vinnunni. Þetta var gert í örbylgjuofninum og þegar skálin var tekin út var Kolbrún auðvitað skynsöm og hafði klætt sig í þykka ofnhanska. Hún labbaði svo með skálina inn í stofu þar sem hún settist niður til að borða núðlurnar. Hún lagði skálina ofan á hægra lærið og brenndi sig. Þó að skálin hafi ekki verið á lærinu nema örskotsstund og hún var m.a.s. í buxum þá var það samt nóg til þess að hún er með 2. stigs hringlaga opið brunasár. Ég fór með hana á slysó þar sem búið var um sárið og dældi svo verkjalyfjum í hana næstu 2 sólarhringana. Þegar verkirnir virtust ekkert vera að lagast ákvað ég að drífa hana aftur uppá slysó til að láta kíkja á þetta. Þá kom í ljós að ígerð var komin í sárið og því varð að hreinsa það og búa um aftur. Hún fékk svo líka uppáskrifaðan pensilínkúr. Við fórum svo aftur uppá slysó í gær samkvæmt fyrirmælum lækna og þeir litu á þetta. Þetta leit þá mun betur út og greinilegt að pensilínið var að virka. Framundan eru umbúðaskipti 2.-3. hvern dag og líklegt að þetta verði ekki farið að gróa almennilega fyrr en eftir 2 vikur. Hún er smám saman að komast uppá lagið með að láta dekra svoldið við sig en það hefur enn og aftur komið í ljós hvað hún er ótrúlega dugleg og sterk ... ég myndi líka segja þetta ef hún væri ekki dóttir mín.

     

      la vite e bella @ dörtí-tú

     

    February 10

    Kerfispæling

    Ég er með kerfi til þess að vinna úr tölvupóstinum mínum. Ég er með kerfi á skjölun prívat gagna og auðvitað annað kerfi fyrir skjölun vinnugagna. Þegar ég tek mig til og fer í allsherjarþrif heima bý ég mér til kerfi. Ég nota kerfi í tengslum við vasapeninga Kolbrúnar. Ég er með lykilorðakerfi. Ég vinn eftir og er með próf í ITIL kerfinu. Ég vinn hjá Opnum kerfum.
     
    Er þetta ekki fullmikil stjórnun? Í vinnunni í dag var ég að reyna að koma kerfi á kerfin og ætlaði að nota eitt yfirkerfi til þess. Getur verið að maður skipuleggur svo mikið að maður gerir ekkert annað en það? Og hvaða grín er orðatiltækið "að fara alveg í kerfi"!?
     
    Engilsaxnesku bræður okkar og systur hittu kannski naglann á höfuðið með ...
     
    ... FUCK THE SYSTEM
     
    Bara smá pæling gegnsýrð af of miklu álagi í vinnunni
    February 06

    Kolbrún bakari

    Það er ljóst að Kolbrún er ekki minna glöð en múttan með að vera loks komin með bakaraofn á heimilið. Hún hringdi í mig í vinnuna í dag og bað um að fá að baka. Það var auðvitað sjálfsagt mál og það er hreint ekki amalegt að koma heim úr vinnu í ilmandi baksturlykt. Hún hafði bakað brauðbollur eftir uppskrift úr Matreiðslubók Latabæjar. Um helgina héldum við matarboð og auðvitað bakaði Kolbrún líka þá fyrir gestina, gómsæta gulrótarköku. Það var sem ég spáði - það er að kvikna nettur húsmóðurfílingur hér eftir að eldhúsið kláraðist enda höfum við verið sveltar á því sviðinu alllengi. Matarboð verða líka pottþétt algeng hér og það kom bara vel út að blanda fólki saman úr mismunandi áttum. Hér var Elín vinkona - hún telst nú varla vera gestur, er meira svona mubla (sorry darling)  Svo var Olga frænka hérna, Björg og Grétar og Rikki og Róbert. Meðlætið og auðvitað eftirrétturinn hennar Kolbrúnar stóðu fyrir sínu en kjötið var algjört rusl. Kjötið var sérstakur "bónus" fyrir auglýsingatökurnar sem fóru fram hérna í síðustu viku. Það kom ekki stórkostlega að sök og við bættum okkar það bara nokkuð vel upp með rauðvíninu.

     

    Hluti af laugardagspartýinu fór að sjálfsögðu í að horfa á eurovision forkeppnina. Ég hef ekki séð neitt af lögunum en þar sem ofurgellan Sylvía Nótt átti að koma fram og eftir alla umræðuna sem hefur skapast í kringum það var möst að fylgjast með þessu. Það voru allir hér sammála að hún ætti að fá að fara alla leið. Go Silvía!

     

    Föstudagurinn var auðvitað líka nýttur í sosíalísingu. Steini vinur minn hefur tekið við rekstrinum á Grandrokk og var að halda uppá það. Það var skemmtilegt og mikið af fastagenginu af KG (Ölveri) mætti til að óska uppháldsbarþjóninum okkar góðs gengis á nýjum stað.

     

    Fram til þessu hef ég verið frekar veik fyrir þýskum bílum og verið alsæl með Volkswagen Boruna mína. Það breyttist á laugardaginn því ég komst að því að hann hefur sjálfstæðan vilja - algjörlega óviðunandi! Ég var á hlaupum á föstudagskvöldið og áttaði mig á því að ég var með bíllykilinn á mér - eina eintakið sem er til af slíkum grip. Vitandi að það kostar í kringum 30 þús krónur að fá nýjan lykil ef maður á engan til að láta gera eftir og þar sem ég var á leið á Grandrokk fannst mér óráðlegt að hafa hann með mér. Ég nennti ekki að hlaupa með hann inn á ákvað því að henda honum inn bílinn. Á laugardeginum þegar ég ætlaði að sækja Kolbrúnu var bílinn harðlæstur og ég veit að ég læsti honum EKKI! Konan varð alveg snar! Eftir að fullvissa mig að það væri vonlaust að komast inn í bílinn hringdi ég í Finn vin minn sem hefur áður bjargað mér í aðstæðum sem þessum. Hann sagði mér að VW væri einstaklega þjófheldur og var búin að finna hægri rúðu afturí þar sem það væri sennilega ódýrasta lausnin að mölva hana til að komast inn í bílinn. Konan varð aftur alveg snar! Finnur róaði mig og lofaði að kíkja á málið. Klukkutíma síðar og var ég komin með lykilinn í hendurnar en bara járnherðatré fátækari þar sem það reyndist óþarfi að brjóta rúðuna. Finnur náði að krækja í lykilinn og ýta á takkann sem aflæsir bílinn. Konan varð mjög hamingjusöm! :)

     

    Ég get víst ekkert gert í því að láta bílinn hætta að læsa sér af sjálfsdáðum og fór því að sjálfsögðu beinustu leið niður í Heklu í dag og lét búa til varalykil.

     

    Ciao í bili

     

    January 31

    Niðurtalning í öskudag

    Það er alltaf stórhættulegt þegar Elín kíkir í heimsókn. Við byrjuðum á saklausri eldamennsku og svo hjálpaði hún mér að taka til og gera eldhúsið fullkomið. Já og á meðan ég man ... ég er komin með bakaraofn, LOKSINS! Ástæðan fyrir því að við vorum að gera eldhúsið svona fínt er sú að Bragi bróðir ætlar að fá það "lánað" á morgun. Til stendur að taka upp auglýsingu og til þess að hún verði sem flottust þarf auðvitað að taka upp í fallegasta eldhúsi landsins.
     
    En nóg um það, við Elín komumst svo á alvöru skrið eftir ca. 2 hvítvínsglös, og versluðum heil ósköp á netinu. Vil ég benda fólki á hina frábæru síðu www.buycostumes.com ! Við höfum ákveðið að ganga í barndóm næsta öskudag og mæta í grímubúningum í vinnuna. Kolbrún fékk auðvitað líka að velja sér búning. Hlátrasköllin heyrðust víst á milli hæða og Helga systir var því komin hingað upp í partýið mjög fljótlega. Pöntunin óx því enn meira enda þurfti að panta bæði fyrir Helgu og stelpurnar hennar. Það kom svo reyndar í ljós að þessi annars ágæti vefur sendir vörur vítt og breitt um heiminn en því miður ekki til Íslands. Slíkt er auðvitað ótækt en ég mun ekki stefna á stríð við þetta fyrirtæki líkt og ég hef gert við Microsoft. Í þetta sinnið mun ég sætta mig við það og hringdi í staðinn bara í Kathy frænku í Texas. Hún var auðvitað boðin og búin taka við herlegheitunum og senda áfram hingað uppá klakann. Nú er bara að vona að pósturinn skili þessu fyrir öskudaginn. Síðasta póstsending sem ég fékk frá USA lagði af stað frá Texas USA 28. nóvember 2005 og var afhent mér 25. janúar 2006. Ætli bréfdúfa hefði ekki verið fljótari með þetta! Við krossum fingur og vonum það besta, við höfum jú alveg heilan mánuð. Er annars ekki í lagi að eyða $420 á svona síðu?
     
    Auðvitað verður ekkert gefið upp um hvaða búningar og aukabúnaður varð fyrir valinu. Þið sem ekki vinnið með annað hvort Elínu og Helgu á MBL eða mér hjá OK verðið því að gera ykkur far á báða staði til að sjá herlegheitin 1. mars næstkomandi.
     
    Hér eru nú samt nokkur dæmi um búninga sem komu sterklega til greina. Ef við Elín værum ennþá að vinna á sama stað hefði Wacky Tourists POTTÞÉTT orðið fyrir valinu!
     
    January 24

    Hvað ert þú ???

    Hér að neðan gefur að líta niðurstöðu úr hávísindalegu og mjög svo þróuðu prófi sem gefur upp hvaða andfélagsleg hegðun ég sýni. Það er alltaf gott að kafa svolítið inná við og því mæli ég eindregið með því að þú takir prófið og segir mér hvaða niðurstöðu þú færð með því að skrifa það í commentin hér.

     

    Your Social Dysfunction:
    Happy


    You're a happy person - you have a good amount of self-esteem, and are socially healthy. While this isn't a social dysfunction per se, you're definitely not normal. Consider yourself lucky: you walk that fine line between 'normal' and being outright narcissistic. You're rare - which is something else to be happy about.

    Take this quiz at QuizGalaxy.com

    Please note that we aren't, nor do we claim to be, psychologists. This quiz is for fun and entertainment only. Try not to freak out about your results.

     

    January 23

    MSN stjörnuleit á Indlandi?

    Hin æsispennandi stjörnuleit hefur enn ekki borið árangur. Ég vildi bara fullvissa þá sem hafa fylgst með þessu merkilega máli hér að ég hef ekki gefist upp.
     
    Ég var afskaplega vongóð fyrir nokkrum dögum þegar ég sá að það var komin smávægilega uppfærsla á MSN Messenger. En því miður lagaðist stjörnumálið ekkert við það. Ég held því áfram afskaplega furðulegum samskiptum mínum við MSN tæknitröllin. Það hefur reyndar hvarflað að mér að mögulega sé það ekkert fólk heldur forrit sem er að svara skeytunum mínum. Það er allavega ekki mjög langt í að ég biðji þau um að hringja í mig. Ef þetta eru í raun manneskjur þá eru þau kannski svona illa lesblind og skilja ekki tölvupóstana mína - símtal ætti að laga það. Það kæmi mér nú ekki á óvart ef á hinum endanum heyrðist rödd rembast við enska tungu með sterkum indverskum hreim.
     
    Í vinnunni hef ég reynslu af tæknitröllum frá Indlandi. HP datt einmitt í hug að spara sér aur og flytja megnið af símaþjónustunni til Bangalore á Indlandi. Símtölin eru oft bráðfyndin ... nema þegar mikið liggur við.
     
    Það er vel við hæfi að skella inn eftirfarandi brandari ásamt mynd.
     
    Microsoft Employee of the Month!
     
    Mujibar was trying to get a job in India. The Personnel Manager said, "Mujibar, you have passed all the tests, except one. Unless you pass it you cannot qualify for this job."
     
    Mujibar said, "I am ready." The manager said, "Make a sentence using the words Yellow, Pink and Green."
     
    Mujibar thought for a few minutes and said, "Mister manager, I am ready." The manager said, "Go ahead."
     
    Mujibar said, "The telephone goes green, green, and I pink it up, and say, 'Yellow, this is Mujibar.'"
     
    Mujibar now works as a technician at a call center for computer problems. No doubt you have spoken to him.
     
     

     ræs end körrí

    January 20

    Yfirburðajafnaðargeð

    Mikið er nú gott að vera haldin yfirburðajafnaðargeði. Reyndar er þetta sérhæft yfirburðajafnaðargeð sem ég bý yfir, það er nefnilega bara gagnvart iðnaðarmönnum. Þið munið kannski eftir hástemmdum yfirlýsingum um lok framkvæmda hér heima hjá mér. Dagsetningin var 15. október 2005 eða áður en Helga systir gifti sig hér og þá átti auðvitað ALLT að vera búið.
     
    Í dag er árið 2006 gengið í garð, janúar vel rúmlega hálfnaður og enn er ég ekki búin að fá eldhúsið mitt klárað 100%. Eftir að ljóst var að eldhúsið kláraðist ekki fyrir brúðkaup var ég sátt við að klára það fyrir jól. Það breyttist svo í fyrir áramót en síðustu daga var ég farin að segja bara að það færi alveg að klárast. Í kjölfarið hefur Magnús smiður fengið hið skemmtilega nýja nafn Magnús-á-morgun!
     
    Það stóð sjaldnast á Guðmundi pípara og hann er núna alveg búinn að klára sitt. Annars var nú hálfskondin síðasta heimsóknin hans. Um helgina hafði hann sett mér fyrir að kaupa hálftommu Primo botnlok sem ég og gerði. Þetta átti svo að nota til að loka röri sem stóð uppúr eldhúsgólfinu. Það þurfti að stytta það svo að uppþvottavélin kæmist almennilega fyrir. Ég hafði a.m.k. í tvígang spurt Guðmund hvort ég gæti ekki gert þetta sjálf, enda tókst mér að stytta 2 rör alein og óstudd þegar ég hafði flísalagt eldhúsið. En nei, píparinn var ekki til í að hleypa viðvaningnum í svona vandasamt verk, það þurfi jú að skrúfa fyrir vatnið og herða þetta almennilega. Nú svo kemur Guðmundur loks í vikubyrjun og ég rétti honum stolt blessað lokið. Ég hefði átt að blogga meira og montast meira með Primo hálftommu botnlokið! Þetta stykki sem ég var með í hendinni var auðvitað kolrangt. Það er það sem ég hef alltaf sagt, það er verst að fara í byggingavöruverslanir um helgar. Þær eru þá fullar af afleysingafólki sem vita minna en maður sjálfur og ekki er það nú of mikið. Það fyndna var samt að blessað rörið var ekkert tengt inná kerfið og þurfti þ.a.l. ekkert að loka því. Ég hefði því alveg getað gert þetta sjálft svo við tölum nú ekki um óþarfa útgjöld uppá heilar 86 íslenskar krónur!
     
    Magnús-á-morgun var svo stillt upp við vegg í dag. Nú skal þetta litla sem eftir er klárað á laugardag! Annars mun ég beita dagsektum. En ástæðan fyrir endurvöktum ákafa í að klára er alveg týpísk fyrir mig - hún kemur frá öðrum. Fyrsta pressan var frá Helgu systur útaf giftingunni. Núna er það Bragi bróðir sem býr til þrýstinginn. Ég á enn heilmikið eftir af sérhæfða yfirburðajafnaðargeðinu gagnvart iðnaðarmönnum en Bragi fékk þá snilldarhugmynd að taka upp auglýsingu í eldhúsinu mínu á sunnudag. Þá var auðvitað rokið til og allt sett af stað svo að af því geti orðið.
     
    Svo er það USA! Já alveg satt! Prinsessan er að fara til NY eftir mánuð. Þetta verður bara örstutt ferð þar sem aðalmálið er að kíkja á NBA leik, nánar tiltekið NY Knicks-Miami Heat. Það næsta sem ég hef komist því að fara á íþróttaviðburð í USA var í Atlanta þegar Kathy og Ron útveguðu miða á hafnaboltaleik. Það hvarflaði ekki að neinum að athuga hvort ég vildi fara enda er ég bara stelpa svo ekki varð af því þá.
     
    Minnismiði: Muna eftir að endurnýja vegabréfið!!!  
     
    January 14

    Hálftommu Primo botnlok

    Við Elín tókum góða syrpu í dag. Við byrjuðu á því að kaupa hálftommu Primo botnlok - mjög stoltar af því að segja þetta svona fagmannlega við afgreiðslufólkið. Ótrúlegt lán að þetta skyldi ekki vera til í Húsasmiðjunni svo við gátum sagt þetta tvisvar og seinna skiptið í Byko. Eftir allmikil útgjöld í báðum verslunum síðastliðið ár var skemmtileg tilbreyting að geta borgað fyrir með klinki. Hálftommu Primo botnlok kostar 86 krónur með virðisaukaskatti í Byko. (Tókst að segja þetta 2x hér líka) :) Eftir góðan hádegismat á Eldsmiðjunni var svo algjört "möst" hjá okkur Elínu að athuga með gullskó sem við sáum í Vikunni. Við rúntuðum niður í 101 Sport en því miður var bara bleika útgáfan til. Bleikt er ekki lengur jafn mikið INN og létum við því hvorugar freistast í þetta sinn. Bróðir hans Gunna var að vinna og lofaði að athuga með gullskóna í umboðinu, frábær þjónusta :) Ég mátaði úlpu í leiðinni en Elín samþykkti enga þeirra ... þær voru allar of mikið soccermom. Óli myndi kalla það flíspeysumömmuútlit en eins og allir vita er það alveg hrikalegt!
     
    Við rúntuðum líka í Habitat þar sem ég keypti hvítt efni á borðstofustólana og svo komum við við í Skífunni þar sem ég keypti nýjasta uppáhaldsdiskinn minn. Auðvitað er ég búin að rip'a hann og setja nýjasta uppáhaldslagið mitt hérna inn. Kelly Clarkson rúlar!
     
    Er á leið í glimmerskvísupartý hjá Rósu sem verður pottþétt hrikalega gaman!
    January 12

    Mont, mont, mont!

    Kolbrún dóttir mín er gáfnaljós og dugnaðarforkur!  Fyrsta bloggið mitt hérna var montfærsla og því orðið löngu tímabært að koma með aðra slíka, enda af nógu að taka! Kolbrún var að koma heim með einkunnirnar sínar fyrir haustönnina. Stelpan var í fyrsta sinn að fá einkunnir í tölum en hingað til hefur þetta verið í umsögnunum ágætt, gott og sæmilegt. Ég er svoldið rosalega mikið montinn af snillingnum mínum núna!
     
    Lestur 8,0
    Íslenska 8,0 - Prófseinkun 8,5
    stærðfræði 7,0
    Enska  9,0 - Prófseinkun 9,5
    Myndmennt 9,0
    Tónmennt 9,0
    Dans  Mjög góð
    Smíði  8,5
    Íþróttir 8,5
     
    Almenn umsögn: Kolbrún vinnur vel og er jákvæð í garð námsins. Er samviskusöm og skipulögð. stendur sig með prýði.
     
    Skólasókn:
    Seint  3st.
    Veikindi 4st.
     
     - Miss Mamma Stolt
     
     
     
    January 04

    2006 gengið í garð

    Gleðilegt nýtt ár öll og takk fyrir þau gömlu!
     
    Það er bannað að rukka aðra um blog ef maður stendur sig ekki sjálfur ... so here goes nothing.
     
    Ég hef svosem ekkert mikið að segja, það er venjulegur janúar sem í mínu tilfelli þýðir vinna, vinna og meiri vinna. Ársuppgjörið hangir yfir manni með tilheyrandi vörutalningum og skemmtilegheitum. Það er samt eitthvað hreinsandi við það að fara og klára málin sem hafa dregist allt of lengi, allt að 12 mánuði. Undanfarna daga hefur inboxið mitt notið góðs af og farið úr 369 skeytum niður í 168 skeyti. Annars á maður ekki að tala um vinnu. Þar sem ég hef ekki frá neinu stórkostlega skemmtilegu að segja sjálf ætla ég að láta duga að hendi hér inn handahófskenndum afurðum netbrölts míns  síðustu daga.
     
    Nýjasta lýsing á Vatnsberanum (ég) :
     
    Vatnsberinn er villtur vatnastrákur eða stelpa. Þetta er fullkomlega ábyrgðarlaust fólk. Þeir hafa einungis eina reglu; ef það er gott, þá gera þeir það. Vatnsberar eru alltaf með flókin og greindarleg plön í gangi sem þeir síðan hlaupa frá án þess að hugsa sig um tvisvar. Þeir segja þér eitt og láta síðan einhverja fáránlega hugmynd teyma þá alveg til Timbúktú. Ekki einu sinni láta þér detta í hug að reyna að fylgja Vatnsbera eftir, þetta er blautt, sleipt og geðveikt lið. Vatnsberinn stjórnast af Úranus, guði eldinga, rafmagns og hjólreiðamanna.
     
    Það eru bara snillingarnir hjá Google! Sumir kalla þetta übernördísku.
     
    Svo er víst til heilmikið blogmál þar sem aðalmálið er að nota "blog" eða bara "b"  sem viðskeyti. Nokkur dæmi:
     
    Blogebrity: Wow, guess what this one stands for? Too easy. Hey, anyone can do it.
    Take a blogger who's a chef, and you get: BLEF.
    A blogger who's a dentist? BENTIST.
    A female blogger with an itch? You guessed it: a BITCH.
     
    Á sama stað er þessi snilld sett fram:
     
    Blogging: If minds had anuses, blogging would be what your mind would do when it had to take a dump.
     
    Kannast einhver við þetta? Kannski við hæfi að stoppa eftir þessi orð
     
     
    Meira síðar ...
    ... ást og friður!
     
    ps. Hvernig léttir maður fullvaxinn helfallegan karlmann um hálft kíló? 
     
    December 26

    Gleðilega hátíð!

    Betra seint en aldrei ...
     
    Enn eitt árið sendi ég ekki jólakort og það sem er öllu verra að ég sendi ekki einu sinni jólakveðju í tölvupósti. Ég er með pínu ogguponsu samviskubit yfir því. Hér er því mætt síðbúin jóla- og áramótakveðja til ykkar allra sem mér þykir vænt um.
     
    Árið hefur verið viðburðarríkt og erilssamt og ein helsta ástæðan fyrir því að enn örlar á einhverri smá eðlilegri geðheilsu hjá prinsessunni er einmitt afþví að ég á svo marga góða að. Húsnæðisframkvæmdirnar kláruðust að mestu á árinu, sem er ekkert lítið afrek. Þegar ég gat ekki meir og sá bara svart vegna svefnleysis eða kostnaðar var alltaf einhver sem annað hvort reif mig frá öllu til að dreifa huganum eða kom og hjálpaði. Ég veit eiginlega ekki hvað ég hef gert til þess að eiga allan þennan góðvilja skilið. Eins og góðum íslending sæmir er þetta sennilega allt saman tekið út á bullandi yfirdrætti. Enn og aftur, þúsund þakkir, milljón kossar og endalaus knús fyrir alla hjálpina.
     
    Áramótin eru framundan og við mæðgurnar, ásamt fjölskyldunni á neðri hæðinni munum fagna "fyrstu" áramótunum hér heima. Það er opið hús ... sem þýðir að allir sem þekkja okkur, þykir vænt um okkur og rata yfir höfuð hingað eru meira en velkomnir
     
    Gleðilega hátíð og megi nýja árið færa ykkur öllum gæfu og gleði.

     
    December 16

    Desemberhugleiðing

    Einhvernstaðar las ég að Netið væri ein risa auðn. Það er kannski eitthvað til í þessu, enda er fátt mjög merkilegt eða mikilvægt sem maður rekst á hér. Ég efast um að nokkur maður mótmæli þessu enda óheyrilegt magn af bulli og þvælu sem er að finna á víðáttum internetsins. Sú tegund síðna sem vex hvað hraðast þessi misserin er víst einmitt þeirrar tegundar sem þú ert akkúrat núna að lesa, blessuðu blogsíðurnar. Ekki batnar það! Auðvitað eys ég eintómri visku og bráðnauðsynlegum upplýsingum yfir lesendur hér og er því undantekningin sem sannar regluna. Önnur síða sem er ekki alvitlaus er sú sem Hákon vinur minn heldur úti og þar bendir hann á síðu sem brýtur öll lögmál og er hreinlega bara vond! Flestar síður hafa eitthvert örlítið fróðleiksgildi en þessari mistekst það algjörlega. Síðan er samt rétt nægilega vond til að vera bráðfyndin. Fyrir alla muni gleymdu ekki að kíkja á myndasíðuna hjá gaurnum!
     
    Áfram rápar maður nú samt um vefi Netsins. Hvar annars staðar rekst maður líka á kynlífsslýsingu þar sem skýringamyndirnar eru skjáborðsmyndir af tölvuleiknum TETRIS? Dásamlega gangslaust en aftur hér er skemmtanagildið í hávegum haft.
     
    Þetta fer kannski að vera meira spurning um hvar ég vel að eyða tíma mínum á Netinu. Ætli "Favorites" hjá mér segi eitthvað um mig?!? ...... Nei þetta lítur allt mjög eðlilega út hjá mér, er það ekki? Ég hef séð fullt af klukk-leikjum í gangi hér á blogsíðum en væri ekki gaman að fá að glugga í Favorites hjá vinum, kunningjum og ókunnugum? Það dylst engum að ég er pínu forvitin - en nú sný ég vörn í sókn og spyr á móti - hvað ert þú að gera hér?
     
    Best að halda áfram að tjá sig aðeins. Ég verð að spyrja, hvað er málið með Gilzenegger?!? Er komin einhver önnur tegund sem gengur upprétt hérna á jörðinni? Ég hélt að við værum öll homo sapiens sapiens? Ég neita allavega harðlega að vera af sömu tegund og þessi fígúra. Nú er þetta fyrirbæri að gefa út bók og í viðtali á visir.is segir Gilzenegger af því tilefni að útgáfa bókarinnar frestast fram í janúar "Ég er á því að það sé jafnvel gáfulegra því þá geta þeir sem hafa fengið lélegar bækur fyrir jólin skipt þeim fyrir þessa". Hversu vond þarf bók að vera til þess að fólk íhugi að skipta henni út fyrir "biblíuna" eins og höfundur kýs að kalla bókina??!? Eins og þetta sé ekki nóg þá segir hann um innihald bókarinnar "svo hjálpa ég strákunum með dömurnar". Ég ætla rétt að vona karlmenn þessarar þjóðar beri gæfu til þess að sjá að maður sem býr yfir jafn mikilli kvenfyrirlitningu og Gilzenegger getur ómögulega verið sá sem leita á til með ráðleggingar um nálgun á hinu kyninu.
     
    Úr kjötheimum er það að frétta að ég hef legið í flensu. Þegar þetta er ritað hef ég verið heima í 2 daga og að mestu leyti eytt tímanum í svefn (25 klst). Ég er alveg sannfærð um að ég verði fersk á morgun samt. Það er allavega gott batamerki að ég nenni að hamra á lyklaborðið núna. Það gengur heldur ekkert að liggja í koju þegar svona stutt er til jóla. Ég er ekki búin að kaupa eina einustu jólagjöf. Reyndar er ég búin að ákveða að hafa sama háttinn á og í fyrra varðandi smáfólkið en það er að leggja inn á bankabækurnar þeirra. Svo kaupir maður eitthvert smotterí bara til þess að þau fái nú líka eitthvað áþreifanlegt. Blessuðu angarnir eiga flest óhóflega margar ömmur, afa, frænkur, fændur, skáfrænkur, stjúpur, stjúpa og hvað þetta heitir nú allt. Pakkaflóðið er í beinu samhengi og því algjör gjafasúpu þar sem engin skilur neitt í neinu lengur. Ástæðan fyrir fyrirkomulaginu liggur þó mest í því hversu skilvirkt, hagkvæmt og tímasparandi þetta fyrirkomulag er fyrir mig
     
    Annað hagkvæmismál er það að ég hef ákveðið að halda áramótapartý. Ekkert er betra en að vera í þægindunum heima hjá sér og fá áramótagleðina innum dyrnar. Útsýnið er líka svo frábært að það spillir nú ekki fyrir. Svo er nú löngu orðið tímabært að halda partý hérna í nýju íbúðinni. Þetta verði einskonar general prufa fyrir innflutningpartýið. Ég er nú þegar búin að bjóða nokkrum, þetta verður BARA gaman!  
     
     ... jólajólajól !