| María Edwardsdó...'s profileMariasoft ®PhotosBlogLists | Help |
|
May 25 Flutningur-> http://maria.blog.isSíðasta færsla fór eitthvað fyrir brjóstið á fólki eða vakti a.m.k. spurningar. Það var engin djúpstæð merking þarna að baki eða falin skilaboð til geimvera. Skýringin er afskaplega einföld. Til þess að fá að lesa inn færslur héðan og inná blog.is þarf ég að sýna fram á "eignarrétt" minn á þessu svæði. Við upphaf innlesturs fær maður svona runu af tölum og bókstöfum úthlutað. Þetta þarf maður svo að setja inná síðuna sem á að lesa inn og þá getur innlesturinn hafist. Mjög einfalt og sniðugt. En afhverju allt þetta vesen? Engum hefur leynst það sem vanið hefur komur sínar hingað að samskipti mín við tæknimenn Microsoft og MSN Space-fólkið hafa verið árangurslaus og pirrandi. Til samanburðar þá lenti ég í vandræðum með innlesturinn á blog.is, sendi þeim tölvupóst kl 21:07 á sunnudagskvöldið og var búin að fá svar kl 8:50 morguninn eftir. Í þeim tölvupósti var ég bara krafin um svar við einni laufléttri spurningu sem ég svaraði um hæl.. Kl. 10:23 þennan sama dag fékk ég aftur póst þar sem útskýrt var að Microsoft fari ekki að stöðlum (kemur ekki á óvart) en að búið sé að breyta innlestrinum á blog.is svo að nú sé gert ráð fyrir þessu afbrigði hjá Microsoft og þar að auki voru þeir búnir að lesa þetta inn fyrir mig. Þetta kalla ég góða og fljóta þjónustu. Svo á maður líka að velja íslenskt :)
Er það ekki samt alveg dæmigert að dagana á eftir þá birtast stjörnurnar í contact listanum og svo í gær er hægt að komast inná svæðin hjá viðkomandi með því að smella á hlekkinn í contact spjaldinu. Akkúrat það sem ég var að kvarta undan að virkaðii ekki :)
Þetta kemur ekki í veg fyrir flutninginn þó. Ég er ákveðin að færa mig yfir á http://maria.blog.is, uppfærið slóðirnar og ég hlakka til að sjá ykkur þar.
Thanks for all the fish! May 20 Eurovision 2006Að horfa á Eurovision án þátttöku Íslands er óáhugavert en Eurovision án Gísla Marteins er óhugsandi. Ég hafði því ákveðið að sleppa að fylgjast með keppninni í ár. Við Elín sátum þó yfir sjónvarpinu þetta kvöld og vorum á rásarrápi. Við duttum inná BBC Prime sem var auðvitað með keppnina á dagskrá og þar fundum við okkar nýja Gísla Martein. Kostur Gísla undanfarin ár hefur einna helst verið sá að að pólítísk rétthugsun fékk ekki að koma nærri meðan á lýsingunni stóð. Þessi breski var aftur á móti með dásamlega gagnslausar og skemmtilegar ábendingar um það sem fram fór á skjánum. Svo var kaldhæðnin aldrei langt undan.
Hér eru nokkur sýnishorn af gullmolum þess breska: Lettland: "Ljómandi fínt, þeir verða örugglega síðastir" "Ég vona að þetta sé ekki of spennandi fyrir ykkur."
Malta: "maður með alvarlegar augabrúnir"
"Hvítur er nýji svarti liturinn í ár."
"Grikkland elskar ávexti og grænmeti"
"Ekki útlit fyrir að hægt sé að fá drykk hérna, langt kvöld framundan"
Bosnía-Herzegóvenía: "það tekur tíma fyrir lagið að fara af stað en svo fer það ekkert mjög langt"
"Í fyrra var naflaár en í ár eru það fótleggir."
"Hvað veit ég - ég hef ekki veðjað á vinningslagið síðustu 35 árin."
Armenía: "Þetta lag færir axlabönd á hærra plan."
Hann fór líka alveg á kostum þegar hann var að lýsa litlu myndbandsbrotunum á milli laganna sem sýndu Grikkland í allri sinni dýrð.
"Hey þarna er ströndin aftur og þarna er grískt kaffi ... þarna sjáum við lest, strönd og hafið ... þarna er grískt brúðkaup ... hey, sjórinn aftur ... enn ein sjoppan, Grikkir virðast afskaplega stoltir af þeim ... drykkir, matur, sundföt en ekki neinn að kyssast ... meiri sjór ..."
Ég legg til í að við höldum keppni fyrir bestu lýsingarnar á Eurovision. Þessi fær mitt atkvæði ... öll 12 stigin! ![]() Terry Wogan - nýja hetjan okkar Elínar í Eurovision Annars óska ég Finnum til hamingju með sigurinn þótt sjálf hefði ég viljað sjá Litháen taka þetta :-)
May 14 Fall er fararheillBræður mínir ásamt félögum þeirra spila stundum fótbolta á sparkvellinum við Austurbæjarskóla. Síðasta fimmtudag hringdi Tommi í mig og spurði hvort ég vildi vera með. Við vorum búin að spila í ca 20 mín þegar hár bolti kemur í áttina til mín. Ég ætlaði að hlaupa á móti honum en heyrði þá háan smell og lá í jörðinni örskömmu síðar. Ég hélt að einhver hefði sparkað aftan í mig en það var þó enginn nærri. Ég þreifaði á fætinum og vissi strax hvað hafði gerst. Næsta stopp var slysó og eftir að hafa grenjað úr sjokki við þær fréttir að ég þurfi að eyða næstu 2 mánuðum í gipsi ákvað ég að taka Pollyönnu á þetta. Þetta gæti hafa verið svo miklu verra. T.d. er örugglega verra að fá loftstein í hausinn, tja eða fótbrjóta sig. Svo er líka jákvætt að þetta hafi verið vinstri fóturinn en ekki sá hægri því það þýðir að ég get a.m.k. komist um á bílnum mínum sem er auðvitað sjálfsskiptur. Fótbolti er í það minnsta stórhættulegur og ólíklegt að ég taki þátt í þessari íþrótt nema bara sem áhorfandi.
Það má segja ýmislegt um hversu samrýmdar við Elín vinkona erum. Flestum þykir þó fulllangt gengið af mér að vera líka komin á hækjur. Síðastliðinn föstudag mættum við þannig á okkur komnar í kokkteil hjá SJÁ. Fólk benti, fólk hló og fólk kom og spurði hvað í ósköpunum hefði komið fyrir enda frekar fáránlegt að sjá tvær saman í þessum ástandi. Við erum samt ekki alveg eins, jú gott og vel við erum báðar á hækjum og jú báðar í gipsi. Já við erum líka báðar með laskaðan vinstri fót og höfðum báðar skreytt hækjurnar með glimmerslaufum. Munurinn er þó sá að hún er fótbrotin en ég er með slitna hásin.
Á morgun byrjar svo fótboltavertíðin hjá mínum mönnum. Haukar-Þróttur á Ásvöllum kl. 20:00. Ég er búin að færa alla leikina inn í calender hjá mér og komst að því að einungis 2 af heimaleikjunum eru föstudagsleikir! *grmbl*
Lifi Þróttur!
May 09 Á ferð og flugiÞá er það ákveðið ... nú á að skella sér til Danmerkur um Hvítasunnuhelgina. Það bætist ekki við listann af löndum sem maður heimsækir þó. Samkvæmt þessari síðu hef ég aðeins heimsótt 6% af löndum heimsins! Mamma er hugsanlega að fara til Finnlands í nokkra mánuði og þá bætist vonandi í safnið :-)
Svo er nú aldeilis gleði þar sem ég er aftur farin að sjá stjörnur í blessaða MSN'inu mínu. Ég er alveg viss um að support'inu hjá Microsoft hefur verið úthýst til Indlands. Það er ástæða fyrir því að það er ódýrara - léleg þjónusta á eðlilega að kosta minna! *grmbl*
Ella gella liggur núna heima með fætur uppí loft. Hljómar betur en það er í raun og veru. Hún er allavega með annan fótinn upp í loft þar sem þessari elsku tókst á sinn einstaka hátt að fótbrjóta sig í óvissuferð með mbl. Ég var með henni síðast þegar þetta gerðist en það var fyrir mörgum árum á Þjóðhátíð í Eyjum. Stuttu fyrir það brot náðist þessi einstaklega skemmtilega mynd af henni.
![]()
May 03 Gleðilegt sumarEngar fréttir eru góðar fréttir ... þannig kýs ég allavega að skýra uppfærsluskortinn hér. Það hefur heilmikið verið í gangi og enn meiri breytingar væntanlegar.
Helst í fréttum er það að ég hef sagt upp hjá Opnum kerfum og ælta að takast á við ný og spennandi verkefni hjá Apple. Það er ekki alveg komið á hreint hvenær ég fæ mig lausa en það verður vonandi sem fyrst og eigi síðar en í ágústbyrjun. Það er hálfskrýtið að hugsa til þess að yfirgefa vinnustaðinn sem ég hef verið á í meira en 7 ár. Sætum skeytum og kveðjum rigndi yfir mig frá vinnufélögunum þegar þetta var tilkynnt og ég var meira og minna tárvot þann daginn. Auðvitað fylgdu verðskuldaðar Júdasarglósur með en það var svo sem ekki við öðru að búast frá þessum léttgeggjuðu tilvonandi fyrrverandi vinnufélögum mínum.
Það eru nokkrir dagar liðnir síðan ég tók þessa ákvörðun og mér lýst alltaf betur og betur á þetta. Bjart framundan
Árshátíð Klúbbsins var svo haldin núna um nýliðna helgi. Helga, Elín og ég borðuðum 5-réttað á La Primavera og það er óhætt að gefa bestu einkunn fyrir mat, vín og ekki síst þjónustuna. Silla kona Baldurs frænda var á vakt en hún er yfirþjónn þarna. Við fengum dekurmeðferð og áttum frábært kvöld saman.
Annars má skrifa fréttaleysið hér mest á þá staðreynd að ég kyssti frosk fyrir nokkrum vikum og hef verið ansi upptekið við að kyssa hann síðan ... nóg um það í bili
Sól, sumar og eintóm gleði :)
March 27 Blog í mýflugumyndÞað er heilmargt búið að vera í gangi undanfarið og mun ég vonandi gera því betri skil innan tíðar. Vegna fjölda áskoranna (og hótanna) neyðist ég til að henda inn myndum frá USA þótt lítill texti fái að fylgja.
PS. Kolbrún er að ná sér ljómandi vel af brunasárinu - takk fyrir að hugsa svona fallega til hennar February 25 Afurð úrkynjunnar úthverfa BNAÉg er að spá í að fá umboðið fyrir þessum peysum. Dásamleg dægrastytting að skoða hvað þessi Leslie hefur verið að dunda við.
Annars er upphitun fyrir Öskudaginn í fullum gangi. Ég mætti með vængi í vinnuna á föstudaginn sem vakti óneitanlega mikla athygli. Það er reyndar hætt við að ég fari að gera þetta að staðaldri. Það er ekki amalegt að vera kallaður "engilinn minn" allan daginn
February 19 Hlátur og gráturÞað hefur heilmargt gerst síðan síðasta færsla fór hér inn. Ég var reyndar búin að setja inn myndir frá síðustu helgi en þá fór fríður kvennahópur í húsmæðraorlof austur fyrir fjall. Reyndar þverneitaði ein úr hópnum að kalla þetta "húsmæðraorlof". Olga frænka vildi að við kölluðum þetta "dömufrí". Mér er nokk sama hvað hver vill kalla svona samkomu. 6 konur samankomnar þar sem öllu sem telst dömulegt var gefið frí á kannski réttilega að heita "dömufrí". Þessar ferðir hafa verið farnar nokkrum sinnum en þetta var í fyrsta skiptið sem við Helga systir komumst með. Í þessari ferð voru ásamt okkur systrum frænkur okkar þær Eva, Anna María og Olga. Svo var ein vinkona þeirra með í för sem heitir Linda. Helmingurinn hafði farið austur á föstudagskvöldinu og við Helga ásamt Lindu rúlluðum þangað snemma á laugardeginum. Við komum fyrst við í bústaðnum þar sem við höfðumst við og fórum svo allar samferða á Hótel Geysi þar sem snæddur var dýrindis brunch. Það er fátt frá helginni sem á erindi hér á þessa síðu, við sættumst á að "what happens in [xxx] stays in [xxx]"! Niðurstaðan var allavega frábær helgi í góðum félagsskap og massa harðsperrur í magavöðvum vegna hláturs.
Ég tel það algjör lykilatriðið í þessu lífi að haga sér reglulega eins og fífl. Tækifærið til að gera það enn eina ferðina kom einmitt á miðvikudaginn s.l. Grímubúningarnir sem voru pantaðir fyrr í mánuðinum komu nefnilega í hús. Mikil leynd hefur hvílt yfir þessu máli því vinnufélagar mínir í Opnum kerfum sem og vinnufélagar Elínar og Helgu á Mogganum mega ekki komast að í hvaða búningum við munum mæta í á öskudaginn. Við gátum auðvitað ekki setið á okkur að máta ... svo að fara út í þeim ... í bíltúr ... niður í bæ ... inná Grandrokk ... og auðvitað að lokum niður á Ölver! Það er til mynd af okkur 3 (Elín, Helga og ég) í búningnum og það er möguleiki að kaupa eintak fyrir grilljón milljónir! Vá hvað það er alltaf gaman þegar við gerum eitthvað saman!
Einn vinur minn orðaði eitt sinn svo skemmtilega að hann hefði "aldrei verið eldri en nákvæmlega núna". Það á alltaf vel við en sérstaklega núna enda átti ég afmæli í vikunni sem leið og er orðin 32 ára - jibbí! Auðvitað hélt ég upp á það og bauð gestum að samfagna mér og þiggja veitingar. Er ástæða til að gera eitthvað annað en fagna? Það ágerist með hverjum afmælisdeginum að mér eru færðar samúðarkveðjur og þá aðallega frá kvenfólki. Í þetta sinn spurði meira að segja ein hvort mér finndist ekki hræðilegt "að eldast svona"?!?! Ég skil hreint ekkert í aldurstengdum kvíðaköstum kynsystra minna og heldur ekki afhverju aldur er feimnismál hjá kvenþjóðinni. Ég hlakka bara til að verða enn eldri - hef t.d. alltaf séð 40 ára afmælið í hyllingum! Það tengist því sennilega að ég er haldin þeirri skynvillu að þá verði ég búin að borga niður megnið af skuldunum mínum og geti farið að slaka meira á og leika mér. Mig minnir að ég hafi byrjað að spá í þetta þegar ég keypti fyrstu íbúðina mína. Núna þegar ekki er lengur svo óralangt í 40 ára afmælið og ég komin í þriðju íbúðina þyrfti kannski að endurskoða þetta mál ... hmmm best að fara að hlakka líka til þess að verða fimmtug! :)
Það voru líka miður skemmtilegir hlutir sem gerðust í vikunni. Litla krúttið mitt hún Kolbrún brenndi sig frekar illa. Sjálfbjarga og duglega stelpan mín var að hita sér núðlusúpa á meðan ég var í vinnunni. Þetta var gert í örbylgjuofninum og þegar skálin var tekin út var Kolbrún auðvitað skynsöm og hafði klætt sig í þykka ofnhanska. Hún labbaði svo með skálina inn í stofu þar sem hún settist niður til að borða núðlurnar. Hún lagði skálina ofan á hægra lærið og brenndi sig. Þó að skálin hafi ekki verið á lærinu nema örskotsstund og hún var m.a.s. í buxum þá var það samt nóg til þess að hún er með 2. stigs hringlaga opið brunasár. Ég fór með hana á slysó þar sem búið var um sárið og dældi svo verkjalyfjum í hana næstu 2 sólarhringana. Þegar verkirnir virtust ekkert vera að lagast ákvað ég að drífa hana aftur uppá slysó til að láta kíkja á þetta. Þá kom í ljós að ígerð var komin í sárið og því varð að hreinsa það og búa um aftur. Hún fékk svo líka uppáskrifaðan pensilínkúr. Við fórum svo aftur uppá slysó í gær samkvæmt fyrirmælum lækna og þeir litu á þetta. Þetta leit þá mun betur út og greinilegt að pensilínið var að virka. Framundan eru umbúðaskipti 2.-3. hvern dag og líklegt að þetta verði ekki farið að gróa almennilega fyrr en eftir 2 vikur. Hún er smám saman að komast uppá lagið með að láta dekra svoldið við sig en það hefur enn og aftur komið í ljós hvað hún er ótrúlega dugleg og sterk ... ég myndi líka segja þetta ef hún væri ekki dóttir mín.
la vite e bella @ dörtí-tú
February 10 KerfispælingÉg er með kerfi til þess að vinna úr tölvupóstinum mínum. Ég er með kerfi á skjölun prívat gagna og auðvitað annað kerfi fyrir skjölun vinnugagna. Þegar ég tek mig til og fer í allsherjarþrif heima bý ég mér til kerfi. Ég nota kerfi í tengslum við vasapeninga Kolbrúnar. Ég er með lykilorðakerfi. Ég vinn eftir og er með próf í ITIL kerfinu. Ég vinn hjá Opnum kerfum.
Er þetta ekki fullmikil stjórnun? Í vinnunni í dag var ég að reyna að koma kerfi á kerfin og ætlaði að nota eitt yfirkerfi til þess. Getur verið að maður skipuleggur svo mikið að maður gerir ekkert annað en það? Og hvaða grín er orðatiltækið "að fara alveg í kerfi"!?
Engilsaxnesku bræður okkar og systur hittu kannski naglann á höfuðið með ...
... FUCK THE SYSTEM
Bara smá pæling gegnsýrð af of miklu álagi í vinnunni |
|
|||||||||||
|
|